Skógræktarfélag Garðabæjar verður með vinnu- og samverukvöld þriðjudaginn 12. júní . Mæting er við Aðstöðu, við Elliðavatnsveg, kl. 20:00.
Allir velkomnir.
Skógræktarfélag Garðabæjar
Skógræktarfélag Garðabæjar verður með vinnu- og samverukvöld þriðjudaginn 12. júní . Mæting er við Aðstöðu, við Elliðavatnsveg, kl. 20:00.
Allir velkomnir.
Skógræktarfélag Garðabæjar
Skógræktarfélag Kópavogs efnir til fræðslugöngu þriðjudagskvöldið 12. júní undir leiðsögn Friðriks Baldurssonar garðyrkjustjóra Kópavogs og Gísla Bragasonar jarðfræðings.
Í Lækjarbotnum er áhugavert útvistarsvæði í fögru umhverfi sem þó fáir vita af. Horft verður sérstaklega til gróðurs, jarðfræði og sögu staðarins.
Lagt verður af stað í gönguna frá bílastæði skammt frá Tröllabörnum við Suðurlandsveg kl. 19:30.
Fræðslugangan er samstarfsverkefni Skógræktarfélags Kópavogs og Skógræktarfélags Íslands.
60 manns fá vinnu við skógrækt og umhirðu á umsjónarsvæðum Skógræktarfélags Kópavogs í sumar. Störfin verða aðallega unnin í Guðmundarlundi og í Selfjalli í Lækjarbotnum.
Atvinnuátakið er samstarfsverkefni Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar. Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og Bragi Michaelsson, formaður Skógræktarfélags Kópavogs, undirrituðu samning um atvinnuátakið í Ráðhúsi Kópavogs föstudaginn 8. júní. Samningurinn jafngildir allt að 10 ársverkum (120 mannmánuðum).
Samningurinn er hluti af atvinnuátaki Skógræktarfélags Íslands sem nær um land allt. Í nafni átaksins hafa verið sköpuð um 50 ársverk á hverju ári síðan 2009 og stefnir í að svipaður fjöldi starfa verði til á þessu ári. Líkt og fyrri ár verða stærstu verkefnin að þessu sinni í Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi.
F.v. Magnús Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson og Bragi Michaelsson við undirritunina (Mynd:EJ).
Skógræktarfélag Garðabæjar stendur fyrir ferð í Brynjudal. Gróðursett verður og hugað að umhirðu. Mæting í Aðstöðu við Vífilsstaðaveg kl. 18:00.
Hafið með hlýjan klæðnað og nesti.
Ýmisleg áhugaverð námskeið eru í boði nú í sumar og haust hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands. Fyrir skógræktarfólk má sérstaklega benda á námskeið um akurskógrækt, sem hefst 15. júní og námskeið um húsgagnagerð úr skógarefni, sem haldið verður í september og október.
Væntanleg er bók um sögu Lystigarðsins í 100 ár (1912-2012). Mjög ítarlega er farið í upphafið, hvernig garðurinn varð til og þá miklu sjálfboðavinnu sem konur fyrst og fremst unnu allt til ársins 1953 þegar Akureyrarbær yfirtekur rekstur garðsins. Í bókinni er mikið af myndum frá öllum tímabilum.
Bókin er rituð af Ástu Camillu Gylfadóttir landslagsarkitekt. Meðhöfundur er Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins.
Hin árlega fuglaskoðunarferð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður laugardaginn 2. júní kl. 10.00. Lagt er af stað frá bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg. Skoðunarferðin tekur um tvær stundir. Leiðsögumenn verða vanir fuglaskoðarar.
Hettusöngvari. Mynd: Björgvin Sigurbergsson.
Nýlegar athugasemdir