Opið hús skógræktarfélaganna að hausti verður fimmtudagskvöldið 7. október og hefst kl. 20:00, í fundarsal á jarðhæð Arion-banka, Borgartúni 19. Gengið er inn um aðaldyr að austanverðu og er salurinn svo á vinstri hönd.
Sagt verður í máli og myndum frá skógarferð til Færeyja, sem Skógræktarfélag Íslands stóð fyrir nú í haust. Ferðasagan verður rakin og fjallað um skóg- og trjárækt í Færeyjum. Upplagt tækifæri til að kynnast minna þekktri hlið á eyjunum!
Skógræktarfélagið hefur um árabil staðið fyrir vinsælum kynnisferðum til annarra landa. Þetta hafa verið fjölsóttar ferðir, þar sem leið ferðalanga liggur oft um óhefðbundnar slóðir, fela í sér mikla náttúruskoðun og góða leiðsögn.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Skógarreiturinn Úti í Gröv (Mynd: RF).
Nýlegar athugasemdir