Mánudagskvöldið 16. ágúst kl. 20:00 mun Óskar Jóhannsson leiðbeina um ætisveppi í Fossselsskógi. Farið er framhjá bænum Vaði og sameinast í bíla við skógarskiltið, þaðan er ekið upp að Geiraseli en þar mun sveppakynningin byrja. Fólk hafi með sér hnífa og ílát.
Kaffi og kex drukkið við Geirasel í lokin.
Allir velkomnir
Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga
Nýlegar athugasemdir