Hvatningarverðlaun skógræktar eru veitt árlega til að hvetja til dáða einstaklinga, hópa, fyrirtækja, félaga eða stofnana sem vinna óeigingjarnt starf í þágu skógræktar á Íslandi.
Að verðlaunum standa Skógræktarfélag Íslands, Land og skógur og Bændasamtök Íslands (skógarbændur).
Tekið er á móti tilnefningum hvenær árs sem er, en tilnefningafrestur er til 14. febrúar fyrir tilnefningu hvers árs. Verðlaununum er úthlutað á alþjóðlegum degi skóga þann 21. mars.