Alþjóðleg ráðstefna um ástand og horfur skóga heimsins verður haldin í Kaldalóni i Hörpu 22. október 2011.
Nánar má lesa um ráðstefnuna á heimasíðu Skógræktar ríkisins (hér).
Dagskrá:
10:30-10:35 | Kynning: Jón Loftsson, skógræktarstjóri |
10:35-10:45 | Stuttmynd frá Sameinuðu þjóðunum: Skógar og menn. Lesari: Egill Ólafsson |
10:45-10:55 | Ávarp: Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra |
10:55-11:25 | Erindi: Staða og horfur hjá skógum heims. Helstu niðurstöður mats á skógarauðlindum heimsins 2010 Mette Wilkie Løyche, forstöðumaður innan skógræktarsviðs Matvæla-og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna |
11:25-11:35 | Fyrirspurnir og umræður |
11:35-12:05 | Erindi: Skógar Evrópu fyrir fólkið Jan Heino, formaður samninganefndar um lagalega bindandi milliríkjasamning um skóga í Evrópu |
12:05-12:15 | Fyrirspurnir og umræður |
12:15-13:15 | Hádegisverður |
13:15-13:45 | Erindi: Frelsi með ábyrgð í sænska skógræktargeiranum Monika Stridsman, skógræktarstjóri Svíþjóðar |
13:45-13:55 | Fyrirspurnir og umræður |
13:55-14:25 | Erindi: Skógrækt á Írlandi: Yfirlit Aine Ni Dhubháin, prófessor í skógfræði við Dyflinnarháskóla |
14:25-14:35 | Fyrirspurnir og umræður |
14:35-15:05 | Kaffihlé |
15:05-15:20 | Tónlistaratriði: Gissur Páll Gissurarson |
15:20-15:50 | Erindi: Framlag Íslands til skógræktar í heiminum Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri Þjóðskóganna |
15:50-16:00 | Fyrirspurnir og umræður |
16:00-16:30 | Samantekt og pallborð: Jón Geir Pétursson, sérfræðingur í umhverfisráðuneytinu. |
Fundarstjóri: Aðalsteinn Sigurgeirson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar, Mógilsá