Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu n.k. þriðjudag 1. nóvember og hefst hún kl. 19:30. Safnast verður saman við Gróðrarstöðina Þöll við Kaldársselsveg og þaðan verður gengið upp Værðarstíg og um skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Við upphaf göngunnar flytur formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar, Anna Borg, stutt ávarp og að því loknu mun Steinar Björgvinsson, skógfræðingur, vera með leiðsögn um skóginn og flytja stutta hugleiðingu um fuglana í skóginum og náttstað þeirra. Á göngu okkar um Værðarstíg mun Jóhann Guðni Reynisson flytja frumort ljóð. Gert er ráð fyrir að skógargangan taki um eina klukkustund og að henni lokinni verður boðið upp á súkkulaði og meðlæti í húsakynnum Þallar.
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hvetja sem flesta til að taka þátt í kvöldgöngu um skóginn. Göngufólk er beðið að taka með sér ljósfæri þar sem skuggsýnt er orðið.
Í Höfðaskógi, skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, í júní (Mynd: BJ).