Skógræktarfélag Íslands og Skógræktarfélag Önundarfjarðar boða til fræðslu- og aðalfundar á Bryggjukaffi, Flateyri. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Jón Ásgeir Jónsson skógfræðingur flytja fyrirlestur um útivistarskóga. Þórveig Jóhannsdóttir, Elisabeth Bernard og Ragnhildur Freysteinsdóttir frá Skógræktarfélagi Íslands munu fjalla um mikilvægi skógræktarfélaga, samninga, Yrkjusjóð o.fl. Sjá nánar í frétt.