Skip to main content

Opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta

Með 24. apríl, 2024Fréttir

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl kl. 10-17. Sumarið byrjar í garðskálanum og gróðurhúsunum þar sem gróðurinn blómstrar og fyrsta uppskeran af fersku grænmeti er tilbúin. Grænmetis- og plöntumarkaðurinn verður garðskálanum og í ár verður hægt að kaupa heimaræktað íslenskt kaffi á meðan birgðir endast. Glæsileg túlípanasýning verður einnig í garðskálanum. Verkefni nemenda verða til sýnis og hægt að fræðast um námið í skólanum. Hátíðardagskrá hefst kl. 13 en þá afhendir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, garðyrkjuverðlaun ársins og umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar. Veitingasala verður á svæðinu allan daginn. Verið velkomin í Garðyrkjuskólann að fagna sumarkomunni með garðyrkjunni.

Dagskrá:

Fundarstjóri:  Björgvin Örn Eggertsson

13:00 – 13:05     Setning – Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari Reykjum

13:05 – 13:25     Garðyrkjuverðlaunin 2024

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson

Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar

Verknámsstaður ársins

Heiðursverðlaun garðyrkjunnar

13:25 – 13:30     Tónlistaratriði – Atli Einar Helgason, gítar

13:30 – 13:45     Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson

13:45 – 13:50     Tónlistaratriði – Alexander Nóri Helgason, hljómborð

13:50 – 14:00     Ávarp – Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands

14:00                   Slit – Björgvin Örn Eggertsson, fundarstjóri