Laufblaðið er fréttablað Skógræktarfélags Íslands. Það flytur fréttir af skógræktarstarfinu og fræðslu og fróðleik um skógrækt. Laufblaðið er sent til félaga í skógræktarfélögunum.
Laufblaðið hóf göngu sína árið 1992 og hefur komið samfellt út frá þeim tíma. Eins og vera ber hefur blaðið þróast og breyst í gegnum tíðina. Í upphafi var það prentað í tveimur litum en er nú í öllum litum flórunnar. Laufblaðið var í A-4 broti til ársins 2004, er það var stækkað í dagblaðsbrot. Árið 2011 var hætt að prenta blaðið á pappír og er því nú dreift rafrænt til félagsmanna.
Ef þið eruð með ábendingar eða hugmyndir er varða blaðið er velkomið að senda þær til ritstjóra á netfangið: ej (hjá) skog.is.
Hér getur þú skoðað Laufblaðið á vefnum.