Vegna útivinnu og sumarleyfa verður skrifstofa Skógræktarfélags Íslands takmarkað og óreglulega opin dagana 25. september til 2. október. Best er að hringja í síma 551-8150 til að athuga hvort starfsmaður sé við.
Ef nauðsynlega þarf að ná í starfsmann má senda tölvupóst eða hringja í farsíma viðkomandi. Nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðunni.
Undanfarin ár hefur verið haldinn vinnu- og fræðsludagur í Hermannsgarði í Guðmundarlundi þar sem áhugasamir ræktendur hafa mætt og notið þess að stússast saman í garðinum stutta stund. Næsti slíkur dagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 25. júlí. Stússið byrjar kl. 17 en hægt er að mæta þegar hentar eftir það. Verkfæri verða á staðnum og boðið upp á grillaðar pylsur og gos í dagslok.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Garðyrkjufélags Íslands – https://gardurinn.is/event/1213/.
Tölvupóstur hjá félaginu liggur niðri í dag, 24.01.2019, vegna tæknivandamála hjá Microsoft. Við vonum að þetta komist fljótlega í lag og að fólk sýni því skilning að lítil svör verði við tölvupóstum tímabundið! Ef brýnt er að ná í starfsfólk má alltaf hringja – símanúmer eru á heimasíðu félagsins.
Nýlegar athugasemdir