LAUGALANDSSKÓGUR |
Laugalandsskógur var formlega opnaður 26. ágúst 2012, er Vigdís Finnbogadóttir klippti á borða yfir stíg inn í skóginn. Laugalandsskógur var friðaður 1981 og flatarmál er um 100 ha. Um Laugaland Í jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín sem skráð var 1712 segir um Laugaland á Þelamörk að skógur væri þar víða til eldiviðar en lítið til kolagerðar. Reynslan hefur sýnt að víðast hvar á svæðinu þar sem land er friðað er náttúrulegt birki að finna. Skógrækt á Laugalandi hefur gengið ágætlega og eru aðstæður þar ákjósanlegar til ræktunar flestra trjátegunda. Frá árinu 1982 og fram til 2000 gróðursettu nýstúdentar við Menntaskólann á Akureyri í landið í tilefni af útskriftinni. Helstu trjátegundir í skóginum eru stafafura, lerki, birki og rauðgreni, en auk þess má finna ýmsar aðrar tegundir. Búið er að merkja nokkrar þeirra. Um árabil hefur verið hér höggvið nokkurt magn af stafafuru og hún seld sem jólatré, auk þess sem fólk hefur komið og fellt eigin jólatré. Laugalandsskógur er opinn til útivistar. Þar eru góð berja- og sveppalönd og er öllum heimilt að nýta þau. |