Á þessari síðu er kynnt þverfaglegt rannsóknaverkefni sem
fjallar um mat á þjónustu sem vistkerfi veita samfélaginu.
Náttúra og umhverfi veita margvíslega þjónustu, þjónustu sem
rannsaka má á hagrænan hátt og fá þannig fram verðgildi einstakra
þjónustuþátta. Þessa þjónustuþætti er hægt að meta sameiginlega þegar
nýtingarstefna er mótuð fyrir ákveðin svæði.
Skortur á hagrænu mati á fjölþættri þjónustu náttúrunnar
leiðir oft til þess að ákvarðanir eru teknar einungis á forsendum um hagnað af
beinni nýtingu auðlinda, en ekkert tillit tekið til fjölþættra annarra verðmæta
sem spillast við þá nýtingu.
Heiðmörk í Reykjavík og Garðabæ er tekið fyrir sem
rannsóknavettvangur, enda fjölbreytt vistkerfi sem veitir margvíslega þjónustu.
Verkefnið er unnið af sérfræðingum rannsóknastofnananna og
meistaranemum í Umhverfis- og auðlindafræði við HÍ á næstu 3 árum.
Niðurstöðunnar munu leiða í ljós verðmæti einstakra þjónustuþátta svæðisins og
draga fram beint peningalegt virði Heiðmerkur. Slíkar rannsóknir hafa ekki
verið gerðar á Íslandi fyrr.